
Prófarkalestur hjá Frœðum ehf. er vandaður og nákvæmur. Lesarar okkar eru háskólamenntaðir málfræðingar með langa reynslu af rithjálparvinnu og textagerð.
Meira um prófarkalestur
Málstefna
|

Sesselja Helgadóttir er löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi úr íslensku á rússnesku og úr rússnesku á íslensku. Auk rússneskuþýðinga tökum við að okkur almennar þýðingar af dönsku, ensku og færeysku yfir á íslensku og rússnesku.
Þýðingar
Túlkun
|

Hugbúnaðarlausnir okkar eru fjölbreyttar. Má þar nefna vefumsjónarkerfið Vefstjóra, leitarvélina Kvist og margvísleg sérsmíðuð kerfi fyrir rannsóknarverkefni, einkum á sviði hugvísinda. Vefumsjónarkerfi
Leitarvélin Kvistur
|

Fræði ehf. er lítið en áreiðanlegt fjölskyldufyrirtæki. Þrátt fyrir að hafa starfað síðan 2006 höldum við yfirbyggingu í algeru lágmarki, m.a. með því að
hýsa starfsemina í heimahúsi. Þannig stórlækkum við tilkostnað og getum boðið þjónustuna á mun hagstæðara verði en ella.
Starfsmenn
|